Fréttir frá 2003

05 1. 2003

Aðalfundur FRN

Aðalfundur Rafvirkjafélags Norðurlands var haldinn miðvikudaginn 30 apríl. Fundurinn var vel sóttur. Guðmundur Gunnarsson form. RSÍ mætti á fundinn og fór yfir málefni sambandsins og kynnti fjármálastöðuna. Lífleg skoðanaskipti urðu á fundinum, bæði um málefni sambandsins og félagsins. Stjórnin var öll endurkjörin, en hana skipa: Formaður Helgi Jónsson, varaformaður Brynjar Hermannsson, gjaldkeri Sigurður Ólafsson, ritari Guðmundur Ingi Geirsson, meðstjórnandi Vigfús Ingi Hauksson. Varamenn eru Aðalgeir Hallgrímsson og Sigurður Hjaltason.

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?