Fréttir frá 2003

05 19. 2003

Ný miðstjórn kjörin.

Nokkrar breytingar urðu á miðstjórn RSÍ á þinginu. Nýkjörnir formenn Björn Ágúst Sigurjónsson FÍR, Georg Georgsson RFS, Anna Melsteð FTR og Arnar Guðlaugsson FNÍR fóru inn í miðstjórn í stað fyrri formanna þessara félaga. Auk þess komu Sigurður Sigurðsson frá FÍR og Anna Nína Stefnisdóttir frá FÍS ný inn. Auk ofantalinna eru í miðstjórn Guðmundur Gunnarsson FÍR formaður, Helgi Jónsson RFN varaformaður, Haukur Ágústsson RFV ritari og Rúnar Bachmann FÍR gjaldkeri, Einar Gústafsson FÍS, Ómar Baldursson FRS, Frosti Frostason FÍR, Oddur Sigurðssson FRV, Andri Jóhansson FRV, Jens Ragnarsson FÍR, Sigurgeir Ólafsson FSS og Einar Kristinsson FSK. Haraldur Jónsson fyrrverandi formaður FÍR hætti í miðstjórn en var kjörinn í sambandsstjórn. Haraldi voru þökkuð mikil og óeigingjörn störf fyrir samtök rafiðnaaðrmanna.   

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?