Fréttir frá 2003

10 28. 2003

Vetrardvöl í orlofsíbúðum á Spáni

Orlofsíbúðir Rafiðnaðarsambandsins  í Torrevieja á Spáni eru vinsæll dvalarstaður yfir vetrartímann í þægilegu vorveðri á meðan vetur ríkir heima á Fróni. Tilvalið fyrir  eldri félaga og  golfáhugamenn .......  Orlofsíbúðir Rafiðnaðarsambandsins í Torrevieja á Spáni eru vinsæll dvalarstaður yfir vertrartímann. Dvalartími að vetri til er eftir óskum hvers og eins. Leigugjaldi er stillt í hóf og miðar út frá 4 vikna dvöl  á tímabilinu 1.nóv.´03 - 3. apríl ´04  Meðalhiti  jan-mars er 18° yfir daginn og einhverju svalara á næturnar. Íbúðirnar eru á annarri hæð i raðhúsalengju, með sér sundlaugargarði. Íbúðirnar eru vel búnar tækjum, húsgögnum, sjónvarpi, útvarpi, rafmagnsofnum ofl. Staðsetningin er miðsvæðis, u.þ.b. 15 mín. gangur niður í hjarta bæjarins, með fjölda veitingastaða, útimarkaði ofl. Í næsta nágrenni er margt að skoða og auðvelt er að taka sér bílaleigubíl og ferðast um fyrir þá sem það kjósa.  Golfvellir í hæðsta gæðaflokki eru í næsta nágrenni, að ekki sé minnst á hvítar strendur til göngutúra og útiveru. Hér eru heimasíður með upplýsingum um svæðið: www.thisisspain.es       www.torrevieja.co.uk      www.golfbonalba.com www.golfvillamartin.com      www.lomasdecampoamor.com Í vetur verður beint flug  á vegum Plúsferða frá Íslandi til Alicante einu sinni í mánuði alveg fram í apríl.    Sérstök "Jólaferð"  verður 18 des. til 5 jan.´04  Til að panta dvöl á Spáni yfir vetrartímann þá hafið samband við skrifstofuna í síma 580 5200 Umsóknareyðublöð  vegna sumardvalar næsta sumar  verður á orlofsvefnum í janúar 2004.  

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?