Fréttir frá 2003

11 2. 2003

Ályktun um lífeyrissjóði

Trúnaðarmannaráðstefna RSÍ haldin 31. okt ? 1. nóv. 2003 mótmælir harðlega því misrétti sem ríkið beitir starfsmenn sína í lífeyris-, veikinda- og orlofsrétti eftir því í hvaða stéttarfélagi þeir eru.   Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við gerð kjarasamninga í mars árið 1997, lýsti Davíð Oddsson, forsætisráðherra, því yfir að ,,Í kjarasamningum ASÍ félaga við ríkið verði sértaklega hugað að því að samræma lífeyrisréttindi þeirra hópa við lífeyrisréttindi annarra starfsmanna ríkisins?.   Við gerð samkomulags aðila vinnumarkaðarins 13. desember 2001 lýsti Geir Haarde, fjármálaráðherra, því yfir að unnið yrði að jöfnun réttinda félagsmanna ASÍ í starfi hjá ríkinu við réttindi annarra starfsmanna ríkisins. Eftir fjölda funda með ráðherrum ríkisstjórnarinnar og embættismönnum varð ljóst að ráðherrar ætluðu sér ekki að standa við gerða samninga. Félagsmenn ASÍ sem eru í starfi hjá ríkinu búa við gróft misrétti.  Trúnaðarmannaráðstefna RSÍ telur þetta ástand óviðunandi og það brjóti í bága við jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar og krefst þess að ríkisstjórnin standi við fyrri yfirlýsingar og telur að ekki eigi að standa upp frá komandi kjarasamningum fyrr en viðunandi niðurstaða hefur náðst í þessu máli.  

Þessi vefur notar vafrakökur til að tryggja eðlilega starfsemi vefsins og mæla heimsóknir á hann. Engar persónugreinanlegar upplýsingar eru vistaðar án samþykkis. Til að lesa nánar um hvernig við notum vafrakökur á þessum vef, Smelltu hér.

Samþykkir þú að vefurinn noti vafrakökur?