11 4. 2003
- Ítarupplýsingar
Næstu daga munum við birta hér á heimasíðunni margskonar upplýsingar úr launakönnuninni sem gerð var innan RSÍ í október. Könnunin var framkvæmd með úrtaki sem svarað var með tölvupósti eða á heimasíðu RSÍ með aðgang bundnum við félagsskrá. Einnig vann hagfræðingur RSÍ nákvæma launakönnun fyrir trúnaðarmannaráðstefnu RSÍ nú um helgina, við munum einnig birta helstu atriði úr henni. Næstu daga munum við birta hér á heimasíðunni margskonar upplýsingar í launakönnun sem gerð var innan RSÍ. Könnunin var framkvæmd með úrtaki sem svarað var með tölvupósti eða á heimasíðu RSÍ með aðgang bundnum við félagsskrá. Alls svöruðu um 53% af úrtaki. Um 11% konur og 89% karlmenn, sem er mjög nálægt lagi. Aldursdreifing var þannig að 22% voru á aldrinum 20 ? 30 ára 38%, á aldrinum 30 ? 40 ára, 25% á aldrinum 40 ? 50 ára, 13% á aldrinum 50 ? 60 ára og tæp 2% eldri en 60 ára. Hagfræðingur RSÍ hefur einnig unnið mjög nákvæma launakönnun úr þeim gögnum sem tiltæk eru í innheimtukerfinu, sem hann kynnti á trúnaðarmannaráðstefnu sambandsins nú um helgina. Helstu atriði hennar verða einnig birt á næstunni hér á síðunni. Á trúnaðarmannaráðstefnunni rýndu menn í þessar niðurstöður og munum við birta eitthvað af þeim vangaveltum. En allt þetta mun verða samninganefndum gott veganesti í komandi samningaviðræðum.
Starfsgreinaskipting í svörun er mjög nálægt því sem hún er í raun.
Rafvirkjar 32%
Rafeindavirkjar 24%
Tæknimenn í rafiðnaði 12%
Símsmiðir 8%
Símamenn 4%
Rafvélavirkjar 1%
Rafveituvirkjar 2%
Sýningarmenn 0.3%
Annað 17%
Starfssvið
Viðhald og þjónusta 14%
Tölvu og samskiptakerfi 16%
Símakerfið 13%
Húsalagnir 8%
Orkudreifikerfið 8%
Sölumennska 7%
Hljóð og myndvinnsla 4.5%
Framleiðslu og verksmiðjuvinna 3.5%
Öryggiskerfi 2%
Fiskvinnsla og matvælaiðnaður 2%
Annað 22%
Vinnustaðir
Almennum markaði 50%
Fyrirtæki í eigu hins opinbera 30%
Fyrirtæki í eigu sveitarfélags 5%
Hjá stóru verksmiðjunum 3.5%
Hjá hinu opinbera 3.5%
Annað 8%
Á hvers konar ráðningarsamning ertu?
Á fastlaunasamning 57%
Á tímalaunum? 43%
Fékkstu meiri en umsamda launahækkun á síðasta samningstímabili?
Já 32%
Nei 68%
Hver eru heildarmánaðarlaun?
Minna en 150 þús. 2.5%
150 ? 200 þús. kr. 12%
200 ? 250 þús. kr. 17%
250 ? 300 þús. kr. 23%
300 ? 350 þús. kr. 21%
350 ? 400 þús. kr. 11%
400 ? 450 þús. kr. 5.3%
450 ? 500 þús. kr. 3.2%
500 þús eða meira 5%
Viktuð meðalheildarmánaðarlaun eru 299.206 kr.
Hver eru mánaðardaglaun?
Minna en 150 þús. kr. 11%
150 ? 200 þús. kr. 32%
200 ? 250 þús kr. 26%
250 ? 300 þús kr. 15%
300 ? 350 þús kr. 10.5%
350 ? 400 þús kr. 2.5%
400 ? 450 þús kr. 1.5%
450 ? 500 þús kr. 1%
500 þús eða meira 0.5%
Hver er fastur vikulegur vinnutími?
40 dagvinnutímar 45%
40 dagv.t + 5 - 10 yfirv.t. 37%
40 dagv.t + 10 ? 15 yfirv.t. 8%
40 dagv.t. + 15 ? 20 yfirv.t. 10%
Hver er meðalyfirvinna á mánuði?
Engin 10%
Minna en 10 tímar 21%
10 - 35 tímar 42%
35 ? 40 tímar 12%
40 ? 45 tímar 4%
45 ? 50 tímar 4%
meir en 50 tímar 7%
Á þessu sést að yfirvinna hefur minnkað verulega meðal rafiðnaðarmanna. Vinnuvikan var að meðaltali um 58 klst. árið 1990 en í dag er meðalvinnuvikan nálægt 45 tímar. En á sama tíma hafa heildarlaun vaxið sem segir okkur að hlutfall daglauna hefur hækkað verulega, enda hefur það verið aðalmarkmið okkar í undanförnum samningum.
Á morgun munum við birta nákvæmari skiptingu launa.