Ó­þreyja í samninga­nefndum Fag­fé­laganna

Categories: 2024, Fréttir, kjarasamningar22-231 min readPublished On: 15. February 2024Last Updated: 19. February 2024

Samninganefndir Fagfélaganna (MATVÍS, VM og RSÍ) hafa gefið fulltrúum sínum við samningaborðið 10 daga frest til að ná saman við Samtök atvinnulífsins um nýjan kjarasamning á almennum markaði. Hafi aðilar ekki komist að samkomulagi að tíu dögum liðnum munu samninganefndirnar hefja undirbúning aðgerða.

Þetta var niðurstaða hitafundar samninganefnda félaganna þriggja í Húsi fagfélaganna í hádeginu í dag, 15. febrúar. Þar kynnti Benóný Harðarson, forstöðumaður kjaradeildar Fagfélaganna, stöðu mála í samningaviðræðum við SA.

Að kynningu lokinni tóku við líflegar umræður, sem fóru langt fram úr tímaáætlun. Ljóst er af þeim umræðum að þolinmæði fyrir árangurslitlum samtölum við samningaborðið í húsakynnum ríkissáttasemjara er á þrotum. Bent var á að mánuðir séu liðnir frá því samtalið hófst.

 

Samninganefndirnar hafa í ljósi þessa verið boðaðar til annars fundar föstudaginn 23. febrúar, eftir 8 daga. Verði ekki útlit fyrir að samningar takist þá helgi, hyggjast samninganefndir MATVÍS, VM og RSÍ leggja á ráðin um undirbúning aðgerða til að knýja á um nýjan kjarasamning.

Fagfélögin funduðu með SA hjá ríkissáttasemjara í gær, miðvikudag og í dag, fimmtudag. Kjarasamningar runnu út síðastliðin mánaðamót og eru lausir.