- Vegna andláts greiðandi sjóðsfélaga greiðast dánarbætur sem eru 80% af meðallaunum viðkomandi *
- Greiða eingreiddar dánarbætur kr. 421.000 enda hafi viðkomandi verið sjóðfélagi i a.m. 6 mánuði þegar dauða hans bar að höndum eða þrjú ár eftir starfslok sökum aldurs eða örorku eftir 5 ára félagsaðild fyrir starfslok.
- Greiða eingreiddar dánarbætur kr. 263.150 sé félagsmaður 70 ára eða eldri þegar andlát hans ber að, enda hafi viðkomandi verið félagsmaður s.l. 5 ár fyrir starfslok.
- Greiða eingreiddar dánarbætur kr. 105.260 sé félagsmaður 75 ára eða eldri þegar andlát hans ber að, enda hafi viðkomandi verið félagsmaður s.l. 5 ár fyrir starfslok.
- Greiða eingreiddar dánarbætur kr. 52.630 sé félagsmaður 80 ára eða eldri þegar andlát hans ber að, enda hafi viðkomandi verið félagsmaður s.l. 5 ár fyrir starfslok.
- Dánarbætur greiðast ekki ef dánarbætur eru greiddar úr slysatryggingu launþega eða skv. skaðabótalögum.
- Greiða eingreiddar dánarbætur eftirlifandi maka eða forráðamanni barna félaga fyrir eitt barn undir 18 ára aldri á framfæri viðkomandi kr. 1.608.861.-
og kr. 804.431.- með hverju barni eftir það. Heildarupphæð deilist jafnt á hvert barn. (m.v. 1. janúar 2026) - Heimilt er að greiða vegna barna allt til 21 árs aldurs, enda hafi viðkomandi barn sannanlega verið á framfæri sjóðfélaga og ekki á vinnumarkaði.
- Heimilt er að greiða viðbótarstyrk, ef sérstakar aðstæður eru við andlát sjóðfélaga. Stjórn sjóðsins ákveður upphæð í hverju tilviki.
Breytingar á upphæð eingreiddra dánarbóta miðast við neysluvísitölu og taka breytingum 1. janúar og 1. júlí ár hvert.
*Stjórn sjóðsins hefur heimild til að meta aðildarsögu félagsmanns til lengri tíma ef félagsmaður var síðast félagsmaður aðildarfélags innan RSÍ.
Síðast breytt: 1. júlí 2026
RSÍ vekur athygli félagsmanna sem eru sjóðfélagar hjá Birtu lífeyrissjóði að við fráfall sjóðfélaga getur eftirlifandi maki og/eða börn yngri en 18 ára sótt um maka- og/eða barnalífeyri hjá sjóðnum. Einnig getur verið réttur til fjölskyldubóta og er þar um sömu umsókn að ræða.
Sjá nánar á heimasíðu sjóðsins birta.is
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:
- Yfirlit yfir framvindu skipta frá sýslumanni.
