Heimilt er að styrkja sjóðfélaga vegna viðtalsmeðferðar hjá viðurkenndum sálfræðingi, félagsráðgjafa og geðhjúkrunarfræðingi. Meðferð skal falla undir löggildingu viðkomandi starfsstéttar.
Greitt er 40% af kostnaði hvers tíma að hámarki 190.000 kr á 12 mánaða tímabili. (Breytt 30. apríl 2026)

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

  • Löggilt greiðslukvittun þar sem fram kemur nafn og kennitala seljanda og kaupanda, tímabil meðferðar, fjöldi skipta ásamt upphæðinni sem greidd var.