Lausar orlofseignir

Tekin hefur verið upp sú nýbreytni hjá Fagfélögunum að félagsfólk okkar getur núna leigt lausar orlofseignir þvert á félög. Félagsfólk mun áfram leigja hjá sínu félagi í gegnum mínar síður en ef áhugi er á að leigja hjá öðru félagi innan Fagfélaganna, þarf félagi að hafa samband við móttöku, bóka og greiða þá með korti í gegnum síma.

Vikulega birtist listi á heimasíðum félaganna yfir lausar eignir vikuna þar á eftir, frá miðvikudegi til mánudags. (Ekki er hægt að hafa fleiri daga í boði þegar leigt er á milli félaga nema þá í eignum erlendis)
Með þessu erum við að auka þjónustu við okkar fólk og vonumst til að þessi nýbreytni falli félagsfólki okkar vel í geð.

Lausir dagar hjá RSÍ

  • 3. – 8. júní
    Flókalundurnr. 15, Klifabotn – Hús B.

Lausir dagar hjá VM

  • 3. – 8. júní
    Akureyri: Furulundur 8 – Íb. R, (hundar leyfðir) Furulundur – Íb. J og íb. G, Illugastaðir – Hús 14, Einarsstaðir – Hús 27, Úlfsstaðir (hundar leyfðir)

Lausir dagar hjá Matvís

  • 3. – 8. júní
    Akureyri: Kristjánshagi 2Íb. 102