Kjaradeild Fagfélaganna verður með viðveru á Vestfjörðum á morgun, þriðjudaginn 24. september. Þá mun sérfræðingur úr kjarateymi Fagfélaganna vera í landshlutanum og hitta félagsfólk RSÍ, MATVÍS, VM og Byggiðn.

Hægt er að bóka tíma með því að senda póst á netfangið benony@fagfelogin.is.

Eins og Fagfélögin tilkynntu á dögunum var ákveðið nýverið að hækka þjónustustigið á landsbyggðinni.

Dagskrá heimsókna út á land verður sem hér segir. Tekið skal fram að félagsfólki um allt land er velkomið að hafa samband við Fagfélögin hvenær sem er utan þessara tíma.

StaðurDagsetning
Austurland4. september
Vestfirðir24. september
Akureyri3. október
Akureyri5. nóvember
Austurland19. nóvember
Akureyri3. desember