Lausar orlofseignir

Tekin hefur verið upp sú nýbreytni hjá Fagfélögunum að félagsfólk okkar getur núna leigt lausar orlofseignir þvert á félög. Félagsfólk mun áfram leigja hjá sínu félagi í gegnum mínar síður en ef áhugi er á að leigja hjá öðru félagi innan Fagfélaganna, þarf félagi að hafa samband við móttöku, bóka og greiða þá með korti í gegnum síma.
Vikulega birtist listi á heimasíðum félaganna yfir lausar eignir vikuna þar á eftir, frá miðvikudegi til mánudags. (Ekki er hægt að hafa fleiri daga í boði þegar leigt er á milli félaga nema þá í eignum erlendis)
Með þessu erum við að auka þjónustu við okkar fólk og vonumst til að þessi nýbreytni falli félagsfólki okkar vel í geð.
Lausir dagar hjá RSÍ
- 18. – 23. mars:
Klifabotn í Lóni – hús A, Klifabotn í Lóni – hús B, - 19. – 23. mars:
Kirkjubæjarklaustur (hundar leyfðir) - 18. – 27. mars:
Spánn, íbúð nr. 30
Lausir dagar hjá Matvís
- 18. – 23. mars:
Svignaskarð 1, Svignaskarð 2, - 18. mars – 1. apríl
Spánn, íbúð nr. 24
Lausir dagar hjá VM
- 18. – 23. mars:
Illugastaðir – hús 14, Klifabotn í Lóni (hundar leyfðir), Laugarvatn – hús 12, Laugarvatn – hús 6, Eirhöfði 7 – íbúð 110, Eirhöfði 7 – íbúð 508, Syðri Reykir, Lækjabraut 2, (hundar leyfðir)
