Árleg fjölskylduhátíð RSÍ á Skógarnesi við Apavatn fer fram dagana 20.-22. júní, eins og áður hefur verið auglýst. Sérstök athygli er vakin á að bókunarkerfi tjaldstæða félagsins á Skógarnesi og í Miðdal verða ekki í notkun þessa helgi.
Þetta er gert til að tryggja að sem flestir komist að. Þeir sem dvelja á tjaldsvæðunum í aðdraganda helgarinnar geta búist við að hver blettur verði nýttur yfir helgina. Frítt er fyrir félagsfólk um helgina en gestir þeirra greiða fyrir tjaldstæðin.
Athygli er einnig vakin á að fimmtudaginn 5. júní verður opnað fyrir bókanir á tjaldstæðum félagsins það sem eftir lifir sumars – að fjölskylduhátíðarhelginni undanskilinni.
Að gefnu tilefni skal áréttað að bókuð tjaldstæði fást ekki endurgreidd vegna veðurs, nema opinberar veðurviðvaranir hafi verið gefnar út í landshlutanum.