Sumarúthlutun er á næsta leiti. Úthlutað verður rafrænt samkvæmt punktakerfi. Hér fyrir neðan er tímalína vegna sumarúthlutunar 2025.
  • 17. febrúar kl. 09.00 opnar fyrir umsóknarferlið vegna sumars 2025. Umsóknarferlið er opið til 4. mars.
  • 5. mars fer svo fram úthlutun, þar sem hæsta punktastaða ræður úthlutun.
  • 5. – 11. mars þarf að greiða fyrir úthlutað hús eða íbúð.
  • 12.-16. mars verður þeim eignum úthlutað, sem ekki hefur verið greitt fyrir eða hafa verið afbókaðar, til þeirra sem fengu synjun.
  • Þann 17. mars kl. 9.00 opnar fyrir alla í „fyrst koma fyrst fá“. Þá er opnað fyrir þær vikur sumars sem eftir verða.

Niðurstöður úthlutunar sendar í sms/tölvupósti til félagsfólks. Félagsfólk þarf að greiða innan viku frá úthlutun.

Ath. að einungis er hægt að hafa eina bókun yfir sumartímann.

Fara á orlofsvefinn

Hundahald

Athygli félagsfólks er vakin á að ákveðið hefur verið að leyfa hundahald í tveimur húsum félagsins til viðbótar.
Húsin eru Hyrnuland 7 og Klifabotn A.

 

Þýskaland og Frakkland í boði

RSÍ býður félagsfólki sínu orlofskosti sumarið 2025 í sveitahúsum í Þýskalandi og Frakklandi. Svo skemmtilega vill til að bæði hýstu húsin myllu, hvort á sínum stað, og eru í gömlum stíl í heillandi umhverfi vatns- og vínbúskapar. Í Þýskalandi er Bohnsmuhle í skógivöxnum dal í næsta nágrenni Móseldalsins. Þaðan er stutt í allskonar afþreyingu fyrir alla aldurshópa.
Myllan í Commisey í Frakklandi liggur við hinn fræga Búrgúndískipaskurð og í næsta nágrenni er vínhéraðið Chablis. Sagan blasir við á öðru hverju horni en á hinu eru vínbændur.
Frábærir útivistarmöguleikar eru á báðum stöðum og einnig er tilvalið að dvelja og njóta með sínu besta fólki í húsunum sem eru mjög rúmgóð.
Sumartímabilið í Frakklandi er frá 7. júní til 23. ágúst og í Þýskalandi frá 5. júní til loka september.
Í Þýskalandsmyllunni eru rúm fyrir 8 en í Frakklandsmyllunni eru rúm fyrir 12. Skiptidagar í Þýskalandi eru á fimmtudögum en í Frakklandi á laugardögum.
Þessa orlofskosti er hægt að bóka í gegnum orlofskerfi RSÍ frá 19. febrúar kl. 9:00 og gildir reglan, „fyrst koma fyrst fá“.

 

Hús félagsins í Frakklandi.

Fara á orlofsvefinn