Aðalfundur Grafíu verður haldinn á Stórhöfða 31, Herðubreið, á jarðhæð (gengið inn Grafarvogsmegin) mánudaginn 28. apríl 2025, kl. 17.00.
Þeir sem hyggjast leggja fram tillögur um lagabreytingar þurfa að koma þeim á skrifstofu félagsins Stórhöfða 31, Reykjavík, fyrir kl. 16.00, mánudaginn 31. mars nk.
Tillögur um lagabreytingar, reikningar og fundargerðir liggja frammi á skrifstofunni í sjö virka daga fyrir aðalfund eða 14. apríl.
Dagskrá fundarins verður auglýst síðar.
Reykjavík, 13. febrúar 2025
Stjórn Grafíu