Hvernig væri að kanna Siglfirsku Alpana í vetur?

Lausar helgar í bjartri og rúmgóðri íbúð í hjarta Siglufjarðar í orlofskerfi RSÍ. Útsýni úr íbúðinni yfir bæinn og fjörðinn svíkur engan. Siglufjörður býr yfir langri sögu og er þekktur fyrir gömlu fallegu húsin, gott útivistarsvæði, skíðasvæði og ægifagurt umhverfi í næsta nágrenni í sveitarfélaginu Fjallabyggð.

Snjórinn er á leiðinni norður, hvað með þig?