Fimmtudaginn 23. janúar, kl. 09:00 verður opnað fyrir umsóknir um orlofshús um páskana. Vegna upptöku nýs orlofskerfis mun punktastaða ráða því hvaða félagar fá úthlutun. Slembiúthlutun verður ekki í boði þetta árið.
Rafræn úthlutun fer fram 3. febrúar þar sem hæsta punktastaða ræður úthlutun.
Niðurstöður úthlutunar verða sendar með SMS skilaboðum og/eða í tölvupósti til félagsfólks. Leiguna þarf að greiða í síðasta lagi 6. febrúar.
Ef ekki er gengið frá greiðslu fyrir tilsettan tíma fer orlofshúsið aftur í umsóknarferli. Þá eiga þau forgang sem ekki fengu úthlutun í fyrri umferð.
Þann 7. febrúar verður opnað fyrir bókanir þeirra sem fengu synjum, á þeim eignum sem eftir standa. Þá gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær.
Þann 10. febrúar verður opnað fyrir bókanir alls félagsfólks.
Athugið að aðeins er hægt að bóka eina eign um páskana.
—
Sumarúthlutun
Opnað verður fyrir umsóknir um sumarúthlutun orlofshúsa 2025 þann 17. febrúar kl. 09:00. Að þessu sinni ræður punktastaða úthlutunum en vegna upptöku nýs orlofskerfis verður slembiúhlutun ekki í boði.
Hægt verður að sækja um til 4. mars. Rafræn úthlutun fer fram 5. mars. Leiguna þarf að greiða í síðasta lagi 11. mars.
Frá 13.-18. mars geta þeir sem fengu synjun sótt um þær eignir sem eftir standa. Þá gildir reglan fyrstur kemur, fyrstur fær.
Þann 18. mars klukkan 09:00 verður opnað fyrir bókanir hjá öllu félagsfólki.
Niðurstöður úthlutunar verða sendar í SMS-skilaboðum og/eða í tölvupósti til félagsfólks.
Athugið að aðeins er hægt að hafa eina bókun yfir sumartímann.