Fulltrúar Hreyfibandalags RSÍ munu safna áheitum fyrir Bergið í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka sem fram fer laugardaginn 24. ágúst 2024. Hreyfibandalagið var stofnað fyrr á árinu en bandalagið stóð í vor fyrir hlaupanámskeiði fyrir áhugasamt félagsfólk RSÍ.
Félagsfólk er hvatt til að skrá sig til þátttöku í maraþoninu á rmi.is og setja nafn sitt á hópinn „Hreyfibandalag RSÍ“. Hér má sjá lista yfir þá einstaklinga og hópa sem hlaupa til styrtar Berginu.
Jafnframt leitar bandalagið að hressu stuðningsfólki til að bera fána og hvetja þátttakendur til dáða.
Þau sem ekki hyggjast hlaupa eru hvött til að styrkja Bergið með fjárframlögum.
Um Bergið
Bergið Headspace opnaði fyrir þjónustu sína haustið 2019 og er ætlað ungmennum upp að 25 ára. Þjónusta Bergsins er þannig uppbyggð að ungmenni, upp að 25 ára, geta óskað eftir þjónustu og fengið viðtal við ráðgjafa tíma sem allra fyrst, á staðnum eða í gegnum fjarþjónustu. Öll þjónusta Bergsins er ókeypis fyrir ungmenni á öllu landinu. Ráðgjafar eru með breiða fagþekkingu og reynslu í störfum með ungu fólki. Markmiðið er að bjóða andlegan stuðning og ráðgjöf sérhönnuð fyrir ungmenni með hlýtt, heimilislegt og opið viðmót. Rannsóknir sýna að þessi aldurshópur sækir sér ekki hjálp fyrr en vandinn er orðinn mikill. Kerfin geta líka verið flókin og afmörkuð við tilteknar greiningar eða vanda sem gerir það að verkum að erfitt er að fá heildstæða þjónustu. Bergið vill ná til ungmenna fljótt og vel, helst áður en vandinn er orðinn mikill eða flókinn. Með fræðslu og stuðningi finnum við leiðir í samvinnu að bættri líðan og eflum virkni ungmenna í samfélaginu. Mikilvægt er að tryggja aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu fyrir þennan hóp en þar hefur Bergið Headspace skapað sér stöðu sem eina lágþröskuldaúrræðið sem í boði er fyrir þennan hóp. Um 300 ungmenni sækja þjónustu Bergsins á hverjum tíma.