Tjaldsvæði RSÍ á Skógarnesi verður opnað miðvikudaginn 17. maí en aðeins B svæðið. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um það hvenær önnur svæði verða opnuð en vissulega spilar veður og gróður þar stórt hlutverk. En hvetjum alla til að fylgjast með upplýsingum sem settar verða á heimasíðu og samfélagsmiðla þegar nær dregur.

Opnað verður fyrir bókanir á B svæði föstudaginn 12. maí kl 9:00

Tjaldsvæði í Miðdal verður opnað 1. júní og þá aðeins A svæðið. Við vekjum athygli á að bókunarkerfi verður ekki á tjaldsvæðinu í Miðdal í sumar, en óbreytt fyrirkomulag verður á Skógarnesi. Greiða þarf fyrirfram fyrir tjaldstæði á orlofsvef RSÍ. Eingöngu er heimilt að koma sér fyrir á því svæði sem bókað er á orlofsvef.