Miðstjórn Rafiðnaðarsambands Íslands fordæmir óeðlileg og ótímabær inngrip ríkissáttasemjara í kjaradeilu Eflingar við Samtök atvinnulífsins. Samningaréttur er grundvallarréttur launafólks sem og rétturinn til þess að leggja niður störf til þess að veita eðlilegan og nauðsynlegan þrýsting á atvinnurekendur í þeirri von að ná ásættanlegum kjarasamningi fyrir félagsfólk sitt. Það er með öllu ólíðandi að ríkissáttasemjari grípi til miðlunartillögu án þess að allar aðrar mögulegar leiðir séu fullreyndar og í fullu samráði við aðila kjaradeilunnar. Ljóst er að samráð var ekki haft við annan samningsaðilann og ekki fengið samþykki fyrir framlagningu miðlunartillögu. Kjaradeilan er ekki á þeim stað að samningaviðræður hafi verið fullreyndar. Stuttur tími er frá því að kjarasamningurinn rann úr gildi og langt frá því að neyðarástand hafi skapast. Því er augljóst að inngrip í kjaradeiluna á þessum tímapunkti er eingöngu til hagsbóta fyrir atvinnurekendur og því má draga í efa hlutleysi ríkissáttasemjara við þessar aðstæður.

Miðstjórn RSÍ skorar á ríkissáttasemjara að draga miðlunartillögu sína til baka og láta af fordæmalausum aðgerðum gegn stéttarfélagi sem með lögmætum hætti leggur sitt af mörkum að ná ásættanlegum kjarasamningi fyrir sitt félagsfólk. Jafnframt ber ríkissáttasemjara að gæta jafnræðis á milli samningsaðila og stilla sér ekki upp í hóp atvinnurekenda með jafn afgerandi hætti og raun ber vitni. Að leggja fram tilboð atvinnurekenda sem miðlunartillögu sýnir skort á tengingu við málstað verkalýðsfélagsins.

Það ber að árétta að hlutverk ríkissáttasemjara er að miðla málum og auðvelda deiluaðilum að ná kjarasamningum en ekki að hlutast til um innihald kjarasamninga eða draga í efa félagslegt umboð samninganefndar verkalýðsfélags. Hlutverk samninganefndar er skýrt og sækir sitt félagslega umboð til síns félagsfólks á hverjum tíma. Ríkissáttasemjari hefur að mati miðstjórnar RSÍ skaðað verulega traust fjölmargra verkalýðsfélaga til embættisins og er ljóst að ef byggja á upp traust þá verður að draga framlagða miðlunartillögu til baka  tafarlaust. Auk þess þarf að tryggja að hlutlaus aðili leiði kjaradeilur á komandi vikum og mánuðum.

Ljóst er að aðgerðir ríkissáttasemjara geta valdið launafólki á Íslandi miklum skaða verði ekki brugðist við með afgerandi hætti strax.