Aðalfundur Félags rafeindavirkja 2022
Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 6.apríl kl.17:30
Aðalfundurinn verður haldinn á Stórhöfða 31. Gengið inn Grafarvogs megin.

Hægt að fylgjast með á Zoom
Zoom linkur: https://us02web.zoom.us/j/87899002948

Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Ath. lagabreyting liggur fyrir fundinn.

14. gr. núverandi
Aðalfund skal boða skriflega með sjö sólarhringa fyrirvara. Í fundarboði skal getið
dagskrár fundarins. Ef tillögur um breytingar á lögum félagsins liggja fyrir skal senda
þær í síðasta lagi með fundarboði. Ennfremur skal birta fundarboð með auglýsingum
í dagblöðum eða útvarpi.

14. grein breytingartillaga.
Aðalfund skal boða með sjö sólarhringa fyrirvara. Í fundarboði skal getið dagskrár fundarins. Ef tillögur um breytingar á lögum félagsins liggja fyrir skal senda þær í síðasta lagi með fundarboði rafrænt á félagsmenn. Enn fremur skal birta fundarboð með auglýsingum í fjölmiðli.