Miðstjórn RSÍ lýsir yfir fullum stuðningi við Eflingu vegna uppsagnar trúnaðarmanns félagsins hjá Icelandair. Uppsögn trúnaðarmanna, sem er eingöngu tilkomin vegna þeirra starfa við að gæta hagsmuna starfsfólks, er með öllu óásættanleg. Í lífskjarasamningum var áréttuð vernd starfsfólks sem sinnir trúnaðarstörfum, umfram formleg störf trúnaðarmanna, að starfsfólk verði ekki látið gjalda fyrir þau störf þeirra og vísað til laga um stéttarfélög og vinnudeilur. Vernd trúnaðarmanna er skýr samkvæmt umræddum lögum og ber fyrirtækjum að virða þá vernd.

Auk þess er rétt að rifja upp sameiginlega yfirlýsingu Icelandair og ASÍ frá 17. september 2020 þar sem aðilar lýsa því yfir að vera sammála um að fara eftir leikreglum og lögum sem gilda á íslenskum vinnumarkaði. Miðstjórn RSÍ skorar á Icelandair að virða lög og reglur á íslenskum vinnumarkaði og draga uppsögnina til baka.