Heimilt er að veita fæðingarstyrk vegna fæðingar barns félagsmanns að upphæð 154.000 kr. fyrir hvert barn.
Styrkupphæð miðast við hvert barn og að foreldri hafi stundað 100% vinnu sl. 6 mánuði fyrir fæðingu/ættleiðingu barns/barna. Styrkurinn lækkar í hlutfalli við starfshlutfall félagsmanns. Þurfi félagsmaður að draga úr vinnu eða hætta störfum vegna veikinda fyrir fæðingarorlof skal horfa til starfshlutfalls fyrir veikindin. Mögulegt er að nýta styrkinn upp að 24ra mánaða aldri barns. Vekjum athygli á að styrkurinn fæst ekki greiddur fyrr en allt að þremur mánuðum eftir töku fæðingarorlofs. Ef barn fæðist andvana eftir átján vikna meðgöngu er greitt 50% af styrk.
Styrkur er staðgreiðsluskyldur.
(Breytt 30.04.2026)
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:
- Greiðsluáætlun frá fæðingarorlofssjóði um töku fæðingarorlofs, þar sem hlutfall og lengd fæðingarorlofs kemur fram.
- Staðfestingu um starfshlutfall (ATH fyllist út af vinnuveitenda) sl. 6 mánuði fyrir fæðingu fæðingu/ættleiðingu barns/barna. Sækja eyðublað
- Vakin er athygli á því að styrkurinn fæst ekki greiddur fyrr en allt að þremur mánuðum eftir töku fæðingarorlof.
