
Fyrstu rafvirkjarnir brautskráðir frá Menntaskólanum á Ísafirði
Mikilvæg tímamót urðu í Menntaskólanum á Ísafirði við brautskráningu þann 23. maí síðastliðinn þegar fyrstu rafvirkjarnir útskrifuðust frá skólanum eftir sameiningu Menntaskólans á Ísafirði og Iðnskóla Ísafjarðar. Þetta kemur fram á vef skólans.
Fjórir rafvirkjar luku námi að þessu sinni og markar útskrift þeirra mikilvægan áfanga í uppbyggingu starfs- og verknáms á Vestfjörðum. Nemarnir hafa lokið fjölbreyttu og krefjandi námi sem undirbýr þá vel fyrir störf í rafiðnaði og hafa þeir nú þegar hafið störf hjá fyrirtækjum á svæðinu.
Berglind Björk Sveinsdóttir hlaut verðlaun fyrir góðan námsárangur við brautskráningarathöfnina. Hún var jafnframt semidúx skólans með meðaleinkunnina 8,77.
Í tilkynningu frá Menntaskólanum á Ísafirði kemur fram að útskriftin sé staðfesting á því öfluga starfi sem unnið hefur verið að undanfarin ár við uppbyggingu rafiðnnáms við skólann. Þar eru jafnframt færðar þakkir til þeirra sem hafa stutt við námið, meðal annars með gjöfum til eflingar kennslubúnaðar.
Sérstakar þakkir fær Rafmennt fyrir stuðning og samstarf við uppbyggingu námsins.
Í fréttinni óskar Menntaskólinn á Ísafirði nýútskrifuðum rafvirkjum til hamingju með áfangann og velfarnaðar í starfi og námi í framtíðinni. Fram kemur að útskrift þeirra sé mikilvægur áfangi fyrir skólann, atvinnulífið á Vestfjörðum og starfsmenntun á svæðinu.
Undir þær kveðjur tekur RSÍ og sendir hamingjuóskir vestur.
Meðfylgjandi mynd er af vef Menntaskólans á Ísafirði.
