Boð í afmæliskaffi FÍR á fimmtudag

Categories: 2026, Fréttir0 min readPublished On: 1. June 2026Last Updated: 1. June 2026

Félag íslenskra rafvirkja verður 100 ára þann 4. júní, næstkomandi fimmtudag. Í tilefni þess verður afmæliskaffi haldið milli klukkan 16:00 og 19:00 á Stórhöfða 31, þann sama dag. Athugið að gengið er inn í húsið Grafarvogsmegin (inngangur g).

Veitingar verða í boði. Á  matseðlinum verða: Kjúklingaspjót, mini borgarar, pulled pork-tortillur, pönnukökur, flatkökur með hangikjöti, grænmetis-vorrúllur (vegan), falafel í tómat-basil (vegan).

Allir félagar í RSÍ eru hvattir til að mæta og fagna 100 ára afmæli FÍR!