Hreyfing í orlofskerfinu

Categories: 2026, Fréttir, Orlofsmál1 min readPublished On: 20. March 2026Last Updated: 20. March 2026

Orlofskerfi RSÍ er í sífelldri endurskoðun með það að markmiði að bjóða félagsfólki upp á heppilega orlofskosti hverju sinni. Síðastliðin tvö ár hefur verið gerð tilraun með orlofskosti í Evrópu og hefur það fallið vel í kramið að bjóða upp á eignir yfir sumartímann í Frakklandi og Þýskalandi.

RSÍ og Matvís stóðu sameiginlega að því að kaupa fasteignir í Flórída á sínum tíma en nú hefur sú ákvörðun verið tekin að selja bæði húsin. Húsið sem var í sameiginlegri eigu RSÍ og Matvís hefur þegar verið selt en hús RSÍ sem eftir stendur samþykkti miðstjórn RSÍ með yfirgnæfandi meirihluta, eftir umræður á tveimur miðstjórnarfundum, að selja. Þess í stað verður lögð áhersla á að fjölga orlofskostum yfir sumartímann í Evrópu og væntanlega verða nýjir kostir kynntir til sögunnar fyrir sumarið 2027.

Nóg er um að vera í orlofskerfi RSÍ innanlands um þessar mundir og unnið hörðum höndum að sinna verkefnum fyrir sumartímabilið. Vinna við reglulegt viðhald stendur yfir jafnt og þétt í öllum okkar húsum en þess fyrir utan er verið að vinna í stórum verkefnum í Stóra húsinu á Apavatni, Vaglaskógi og Varmahlíð þar sem er verið að endurnýja mikið innanhúss. Unnið er að undirbúningi nýs húss í Flókalundi í stað þess gamla og nýtt orlofshús á Ísafirði er í pípunum í stað þess sem RSÍ á í Bolungarvík.