Lausir dagar í orlofseignum

Categories: 2026, Fréttir1 min readPublished On: 12. March 2026Last Updated: 12. March 2026

Bætt þjónusta við félagsfólk Fagfélaganna

Tekin hefur verið upp sú nýbreytni hjá Fagfélögunum að félagsfólk okkar getur núna leigt lausar orlofseignir þvert á félög. Félagsfólk mun áfram leigja hjá sínu félagi í gegnum mínar síður en ef áhugi er á að leigja hjá öðru félagi innan Fagfélaganna, þarf félagi að hafa samband við móttöku, bóka og greiða þá með korti í gegnum síma.

Vikulega birtist listi á heimasíðum félaganna yfir lausar eignir vikuna þar á eftir, frá miðvikudegi til mánudags. ( Ekki er hægt að hafa fleiri daga í boði þegar leigt er á milli félaga nema þá í eignum erlendis)
Með þessu erum við að auka þjónustu við okkar fólk og vonumst til að þessi nýbreytni falli félagsfólki okkar vel í geð.