Sumarúthlutun orlofshúsa 2026

Categories: 2026, Fréttir, Orlofsmál1 min readPublished On: 9. March 2026Last Updated: 9. March 2026

Alls bárust 2.480 umsóknir um dvöl í orlofshúsum RSÍ fyrir sumarið 2026 frá 680 umsækjendum. 500 vikur standa til boða á sumartímabilinu en 400 umsóknir gengu út í fyrstu umferð. Umsækjendur sem fengu höfnun gefst kostur á að sækja um í þeim orlofshúsum sem ekki gengu út við fyrstu umferð í úthlutun og þá gildir reglan fyrstur kemur fyrstur fær.

Punktaeign á bak við úthlutanir 17. - 24. júlí

Í vinsælustu vikunni 17. – 24. júlí voru punktar á bak við úthlutanir á bilinu 131-450.

  • 17% þeirra sem fengu úthlutun áttu fleiri en 400 punkta
  • 29% átti 300-400 punkta,
  • 29% áttu 200-300 punkta og
  • 25% áttu 130-199 punkta.

Fjöldi umsókna eftir vikum

Þegar skoðaðar eru vinsældir stakra eigna í orlofskerfi RSÍ þá stendur Stykkishólmur upp úr en 238 umsóknir bárust um 10 vikur næsta sumar! Eftir því sem eftirspurnin er meiri, þarf fleiri punkta til að fá úthlutun og var punktaeign umsækjenda í Stykkishólmi á bilinu 261-449 vegna sumarsins 2026.

Þar á eftir koma Vaglaskógur, Vestmannaeyjar og Hálöndin á Akureyri í röðinni.

Úthlutun orlofseigna RSÍ byggir á punktaeign félagsfólks og er gerð með sjálfvirki keyrslu innan félagakerfis sambandsins.