
Félag karla með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandendur
Krabbameinsfélagið Framför er félag karlmanna með krabbamein í blöðruhálskirtli og aðstandenda þeirra. Félagið var stofnað árið 2007 og var Oddur Benediktsson aðalhvatamaður að stofnun þess. Í dag starfar Framför á landsvísu sem sjálfstætt áhugamannafélag, er aðili að Krabbameinsfélagi Íslands og á í samstarfi við Ljósið. Félagið er einnig aðili að alþjóðlegum samtökum um málefnið. Sjá nánar hér.
Tilgangur Framfarar er að styðja karlmenn sem hafa greinst með krabbamein í blöðruhálskirtli, sem og maka þeirra og aðra aðstandendur. Lögð er áhersla á fræðslu, miðlun upplýsinga og stuðning á öllum stigum ferlisins, allt frá fyrstu grunsemdum um sjúkdóm til meðferðar og eftirfylgni.
Blöðruhálskirtilskrabbamein er eitt algengasta krabbamein meðal karla og oft eru lítil eða engin einkenni á fyrstu stigum. Því getur reynst erfitt að átta sig á því hvenær ástæða er til að láta kanna málið. Ráðlagt er að karlmenn á miðjum aldri ræði við heimilislækni sinn og óski eftir mælingu á PSA-gildi ef tilefni þykir til. Slík mæling felur í sér einfalda blóðprufu sem tekin er á heilsugæslu eða rannsóknarstofu.
Reynist PSA-gildið lágt er almennt ekki þörf á frekari aðgerðum á þeim tímapunkti. Sé það hækkað tekur læknir við og ákveður næstu skref, svo sem frekari rannsóknir, sýnatöku eða myndgreiningu. Í framhaldinu er metið hvort beita eigi virku eftirliti, skurðaðgerð eða annarri meðferð, svo sem geislun eða hormónameðferð, allt eftir eðli og framvindu sjúkdómsins.
Framför leggur jafnframt áherslu á mikilvægi þess að menn fari ekki einir í viðtöl þar sem farið er yfir niðurstöður og meðferðarkosti. Á slíkum stundum getur verið erfitt að meðtaka allar upplýsingar. Félagið veitir stuðning og aðstoð og leitast við að standa með félagsmönnum og aðstandendum á krefjandi tímum.
Með því að vekja athygli á starfi Krabbameinsfélagsins Framfarar vilja Fagfélögin hvetja karlmenn til að huga að heilsu sinni og leita sér upplýsinga og stuðnings ef þörf krefur. Snemmtæk viðbrögð og reglulegt eftirlit geta haft veruleg áhrif á lífsgæði og horfur til framtíðar.
Hér fyrir neðan má sjá eitt af fræðslumyndböndunum sem birt er á vef Framfarar:
