
Skráning lífeyrisnámskeið og fjármálanámskeið
Opnað hefur verið fyrir skráningu á tvö fjarnámskeið á vegum Fagfélaganna, SVG og FFÍ sem notið hafa mikilla vinsælda. Annars vegar er um að ræða fjármálanámskeið sem fram fer 11. mars en hins vegar lífeyrisnámskeið sem kennt verður 18. mars. Björg Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi kennir bæði námskeiðin. Skráningargjald er aðeins 1.500 krónur fyrir hvort námskeið. Upplýsingar um önnur námskeið má sjá hér.
Fjármálanámskeið 11. mars kl. 18-21 (skráning hér)
Persónuleg fjármál fyrir 40 ára og yngri – með Birni Berg Gunnarssyni
Um er að ræða fjarnámskeið um ýmsar hliðar persónulegra fjármála. Rætt verður um efnahagsaðstæður í dag, hvernig við bregðumst við háum vöxtum og verðbólgu og við hverju má búast í þeim efnum. Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi kennir námskeiðið.
Meðal umræðuefna má nefna:
- Húsnæðislán í dag
- Sparnaður og uppbygging eigna
- Hvernig er best að safna lífeyri?
- Fjárhagslegt átak og niðurgreiðsla lána
Þau sem skrá sig fá sendan greiðsluseðil í heimabanka upp á 1.500 krónur. Greiðsla hans gildir sem staðfesting fyrir skráningu. Hlekkur á fjarfund verður sendur á skráð netfang þegar nær dregur námskeiðinu.
Mökum félagsfólks er velkomið að fylgjast með og taka þátt. Námskeiðið er frá klukkan 18-21.
Lífeyrisnámskeið 18. mars kl. 18-21 (skráning hér)
Fjarnámskeið með Birni Berg Gunnarssyni
Fagfélögin, í samstarfi við SVG og FFÍ standa þann 18. mars fyrir námskeiði um lífeyrismál sem kennt verður á fjarfundi. Fullt hefur verið út úr dyrum á þessi námskeið undanfarin ár.
Á námskeiðinu fer Björn Berg Gunnarsson fjármálaráðgjafi yfir helstu stoðirnar í lífeyriskerfinu og hvernig þær virka. Rætt verður um stoðirnar sem mynda lífeyrisgreiðslur og reynt að svara ýmsum spurningum er varða lífeyrismál sem brenna á þátttakendum.
Athugið að fjarfundargestir mega að sjálfsögðu bjóða mökum að fylgjast með og taka þátt. Sætafjöldi er takmarkaður við 100 svo öllum gefist færi á að spyrja spurninga.
Þau sem skrá sig fá sendan greiðsluseðil í heimabanka upp á 1.500 krónur. Greiðsla hans gildir sem staðfesting fyrir skráningu. Hlekkur á fjarfund verður sendur á skráð netfang þegar nær dregur námskeiðinu.
Mökum félagsfólks er velkomið að fylgjast með og taka þátt. Námskeiðið er frá klukkan 18-21.
