Fræðsludagskrá Fagfélaganna

Categories: 2026, Fréttir1 min readPublished On: 17. February 2026Last Updated: 17. February 2026

Fagfélögin standa fyrir metnaðarfullri fræðludagskrá á næstunni. Á dagskrá eru námskeið um lífeyrismál, fræðsla fyrir trúnaðarmenn, hádegisfyrirlestrar og ráðgjöf við skattaskýrsluskil.

Öll námskeiðin eru haldin á Stórhöfða 29-31 en gengið er inn Grafarvogsmegin (neðanvið húsið). Athugið að tvö námskeið á listanum hér fyrir neðan eru fjarnámskeið.

Upplýsingar um skráningar eru að jafnaði fyrst birtar á heimasíðum félaganna (VM, MATVÍS og RSÍ) en einnig eru eftir atvikum sendir út tölvupóstar til félagsfólks. Gott er að huga að því að netföng séu rétt skráð á mínum síðum.

Gott er að hafa hugfast að sætaframboð er takmarkað.

Athugið að hægt er að stækka þessa töflu með því að velja punktana þrjá og svo skjátáknið uppi í hægra horni hennar.