
Sumarúthlutun 2026
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um dvöl í orlofshúsum okkar sumar 2026. Opið verður fyrir umsóknir til 3. mars nk. Úthlutað verður rafrænt þann 4. mars, þar sem hæsta punktastaða ræður úthlutun. Niðurstöður úthlutunar verða sendar í tölvupósti/sms til félagsfólks. Félagsfólk sem fær úthlutað þarf að greiða leiguna í síðasta lagi 10. mars, eftir þann dag fellur bókunin niður.
11. mars kl. 9.00 verður opnað á þær eignir sem ekki hefur verið greitt fyrir eða hafa verið afbókaðar, til þeirra sem fengu synjun.
Ef einhverjar eignir standa eftir ógreiddar, verður opnað á þær þann 18. mars kl. 9.00 og gildir þá reglan “fyrst koma fyrst fá” .
