Útgreiðslu lokið úr Námssjóði

Categories: 2026, Fréttir0 min readPublished On: 10. February 2026Last Updated: 10. February 2026

Starfsfólk sveitarfélaga úr röðum Fagfélaganna (VM, RSÍ og MATVÍS) hefur í dag fengið greitt úr Námssjóði. Um sjóðinn er fjallað í kjarasamningum við sveitarfélögin frá 2022.

Þar segir: „Launagreiðandi greiðir mánaðarlega framlag í námssjóð sem nemur 2,2 % af heildarlaunum starfsmanna. Upphæðin er svo greidd út árlega, í febrúarmánuði.”