
Fulltrúar launafólks í stjórn Birtu
Valnefnd Birtu lífeyrissjóðs auglýsir eftir frambjóðendum til þess að taka sæti í stjórn sjóðsins kjörtímabilið 2026 til 2028. Allar upplýsingar er að finna á vefnum birta.is.
- Fulltrúaráð launamanna Birtu kýs tvo stjórnarmenn (karl og konu) til tveggja ára og einn varamann (konu) til tveggja ára í stjórn sjóðsins.
Áhugasamir geta gefið kost á sér með því að senda inn umsókn í formi útfyllts framboðseyðublaðs og senda það á netfangið valnefnd@birta.is fyrir kl. 16.00 laugardaginn 21. febrúar 2026.
Fyrirspurnir skulu einnig berast á netfangið: valnefnd@birta.is
