
Fagfélagakonur lögðu niður störf
Baráttukonur úr röðum Fagfélaganna voru meðal þúsunda kvenna og kvára sem lögðu niður störf í tilefni Kvennaverkfallsins sem Kvennaár 2025, stóð að baki 24. október síðastliðinn.
Fagfélögin dreifðu bleikum húfum og fánum við upphaf sögugöngu um merka áfanga í íslenskri kvennabaráttu, sem hófst í Hljómskálagarðinum í Reykjavík. Að útifundi á Arnarhóli loknum hittust þátttakendur úr Fagfélögunum í drykk á hótelinu Reykjavík Edition og gerðu sér þannig dagamun á þessum frábæra og vel heppnaða baráttudegi.
Fagfélögin þakka öllum konum og kvárum fyrir samveruna og eldmóðinn á þessum merkisdegi í sögu réttindabaráttu kvenna á Íslandi.
Meðfylgjandi myndir voru teknar af þessu tilefni.
