Sumartímabilið er 10 vikur, frá 12. júní til 21. ágúst 2026
- 16. febrúar kl. 09.00 opnar fyrir umsóknir vegna sumars 2026.
- Úthlutað verður samkvæmt punktastöðu, opið til 3. mars.
- Rafræn úthlutun fer fram 4. mars , þar sem hæsta punktastaða ræður úthlutun.
- 4. – 10. mars þarf að greiða fyrir úthlutað hús eða íbúð.
- 11.-15. mars verður opið á þær eignir sem ekki hefur verið greitt fyrir eða hafa verið afbókaðar, til þeirra sem fengu synjun.
- 18. mars kl 9.00 verður opnað fyrir bókun á allt félagsfólk. Þá er opnað á þær vikur sumars sem eftir verða, “fyrst koma fyrst fá”.
- Niðurstöður úthlutunar sendar í sms/tölvupósti til félagsfólks.
Ath. að einungis er hægt að hafa eina bókun yfir sumartímann.
Slembiúthlutun verður ekki í boði þetta árið vegna upptöku á nýju orlofskerfi.
