Þjóð gegn þjóðarmorði

Categories: 2025, Fréttir2 min readPublished On: 2. September 2025Last Updated: 2. September 2025
RSÍ er í hópi tuga samtaka og félaga sem standa fyrir fimm baráttufundum undir heitinu Þjóð gegn þjóðarmorði næstkomandi laugardag. Þar verður yfirstandandi þjóðarmorði Ísrael gegn palestínsku þjóðinni mótmælt.

Fundirnir hefjast klukkan tvö á laugardag og verða haldnir á Austurvelli í Reykjavík, Akureyri, Ísafirði, Egilsstöðum og í Stykkishólmi.

„Við höfnum þjóðarmorði og brotum Ísraels á alþjóðalögum. Tími yfirlýsinga og undanbragða er liðinn, tími aðgerða er runninn upp!“ segir í fundarboðinu, sem sjá má hér að neðan.

Flest samtök launafólks á Íslandi standa að baráttufundunum ásamt fjölmörgum öðrum samtökum og félögum sem berjast fyrir mannréttindum.

RSÍ skorar á félagsfólk að fjölmenna á fundina á laugardag.

ÞJÓÐ GEGN ÞJÓÐARMORÐI – Fjöldafundur laugardaginn 6. september kl 14:00 á Austurvelli í Reykjavík

Í nær tvö ár hefur heimsbyggðin fylgst með sífellt versnandi og óbærilegum þjáningum almennra borgara í Palestínu með hryllingi. Sameinuðu þjóðirnar hafa lýst yfir fimmta og þar með efsta stigi hungursneyðar. Hún er alfarið manngerð af völdum Ísrael sem hefur lagt ræktanlegt landsvæði í rúst á Gaza og lokað fyrir að matvæli berist til íbúa. Samkvæmt gögnum ísraelska hersins eru 83% þeirra sem Ísrael hefur myrt almennir borgarar. Þar af eru a.m.k. 18.500 börn eða um 28 börn á hverjum einasta degi, álíka mörg og heill bekkur í grunnskóla á hverjum degi.

Þjóðarmorð stendur yfir af hálfu Ísraelsríkis gagnvart palestínsku þjóðinni. Stríðsglæpi Ísraels verður að stöðva.

Ríkisstjórn Íslands hefur líkt og aðrar ríkisstjórnir vestrænna ríkja ekki brugðist við glæpum Ísraels í samræmi við alvarleika þeirra. Nú hafa heildarsamtök launafólks, verkalýðsfélög, mannúðarsamtök, fagfélög og önnur samtök tekið saman höndum til að halda mótmælafundi um land allt þar sem almenningur kemur saman til að sýna samstöðu sína með Palestínsku þjóðinni og krefjast þess að íslensk ríkisstjórn grípi til alvöru aðgerða til að sýna afstöðu sína gegn þjóðarmorðinu!

Við höfnum þjóðarmorði og brotum Ísraels á alþjóðalögum. Tími yfirlýsinga og undanbragða er liðinn, tími aðgerða er runninn upp! 

Fjölmennum á Austurvöll þann 6. september klukkan 14.00 og krefjumst tafarlausra og markvissra aðgerða íslenskra stjórnvalda gegn þjóðarmorðinu!