Þrátt fyrir breytilegar veðurspár fyrir helgina sem hátíðin var haldin og m.a.s. gula viðvörun tókst fjölskylduhátíð RSÍ á Skógarnesi með ágætum þar sem félagsfólk í RSÍ og fjölskyldur þeirra höfðu gaman saman, þrátt fyrir nokkra vætu inni á milli. Formleg dagskrá hófst á föstudagskvöldinu þegar RSÍ UNG stóðu fyrir spurningakeppni í tjaldinu og í kjölfarið fylgdi DJ Snæbjörn með stuðmúsík.
Á laugardeginum hófust leikar kl. 9 þegar krakkar á öllum aldri fóru í boltaleit og fengu að launum aðgöngumiða í bíó. Veiði var ágæt og komu allnokkrir fiskar á land og sá lengsti 44 cm og reyndar tveir af þeirri stærð. Grillaðar voru pulsur ofan í alla gesti og svo var hleypt af stað í ýmsar greinar. Fimm lið kepptu í fótbolta þar sem enginn afsláttur var gefinn þrátt fyrir rigningu. Hlaupið ræsti Fáni – lukkudýr RSÍ sem stal senunni og sló alveg í gegn.
Leikhópurinn Lotta kom sér fyrir inni í tjaldi og sýndi leikritið um Hróa Hött og skátarnir settu upp útileiktæki inni á tjaldsvæði A og var það góð staðsetning í logni sem fór fullhratt yfir tækin! Pútt, golf og frísbígolf var spilað og um kvöldið voru veitt verðlaun í öllum greinum.
Að verðlaunafhendingu lokinni mætti tónlistarmaðurinn Jón Jónsson á svæðið og á þeim tímapunkti var tjaldið orðið troðfullt – enda heillar Jón allan aldur og fékk fólk til að syngja með í öllum lögum.
Fjölskylduhátíðarnefnd þakkar gestum og ekki síst starfsfólki RSÍ og sjálfboðaliðum sem aðstoðuðu við hátíðina, kærlega fyrir veitta aðstoð.
- Þróunarvinna með Fána
- Glæsileg dagskrá
- Spurningakeppni RSÍUNG
- Verðlaunahafa í spurningakeppni
- Poppið vakti lukku
- Hlaup ræst af Fána
- Í mark komu öll og Fáni hvatti hlaupara
- Aðalpoppararnir
- Poppframleiðsla
- Pulsuverksmiðjan
- Gómsætar pulsur
- Leikhópurinn Lotta
- Hrói höttur
- Fjör og stuð
- Fullt tjald af leikhúsgestum
- Leynigestur hjá Lottu
- Vinsæll Fáni
- Framkvæmdastjóri RSÍ, Fáni og sérlegur aðdáandi og svo formaður RSÍ
- Grilldrengirnir
- Verðlaunaafhending
- Verðlaunaafhending
- Verðlaunaafhending Sigga Rósa formaður fjölskylduhátíðarnefndar
- Verðlaunaafhending
- Verðlaunaafhending
- Verðlaunaafhending
- Verðlaunaafhending
- Verðlaunaafhending
- Verðlaunaafhending
- Verðlaunaafhending
- Verðlaunaafhending
- Verðlaunaafhending
- Verðlaunaafhending
- Jón Jónsson heldur uppi fjöri
- Jón Jónsson heldur uppi fjöri
- Jón Jónsson heldur uppi fjöri
- Jón Jónsson heldur uppi fjöri
- Jón Jónsson heldur uppi fjöri
- Jón Jónsson heldur uppi fjöri
- Jón Jónsson heldur uppi fjöri