Fjöldi kylfinga í VM, MATVÍS, RSÍ, Flugfreyjufélaginu og Sjómanna- og vélstjórafélagi Grindavíkur tóku þátt í Golfmóti iðnfélaganna sem haldið var hjá Golfklúbbi Öndveraðrness föstudaginn 6. júní sl.

Leikinn var höggleikur og punktakeppni með forgjöf. Vegleg verðlaun voru í boði bæði í karla og kvennaflokki auk útdráttarverðaluna og buðu félögin svo til glæsilegs málsverðar að móti loknu.

Boðið var upp á rútu til og frá mótsstað en mikil ánægja var með mótið og stefna félögin á að halda Golfmót iðnfélaganna árlega héðan í frá.

Pálína Sigurðardóttir (RSÍ) vann punktakeppni kvenna (34 punktar). Önnur varð Anna Svandís Helgadóttir (RSÍ) en þriðja Guðbjörg Ingólfsdóttir (RSÍ).

Baldvin Agnarsson (VM) vann punktakeppni karla (44 punktar). Annar varð Jón Lúðvíksson (RSÍ) en þriðji Bergvin F Ólafarson (SVG). Balddvin og Pálína eru á meðfylgjandi mynd.

Victor Rafn Viktorsson (RSÍ) sigraði höggleik í karlaflokki en hann lék hringinn á 72 höggum. Salbjörg Bjarnadóttir (RSÍ) lék á fæstum höggum í kvennaflokki, eða á 102.

Sigurvegarar í punktakeppni og höggleik kvenna.