Tilkynning frá samninganefnd AFL Starfsgreinafélags og RSÍ
Samninganefnd AFLs Starfsgreinafélags og Rafiðnaðarsambands Íslands lýsir yfir miklum vonbrigðum með gang samningaviðræðna við Alcoa Fjarðaál.
Það er orðið ljóst að Alcoa, líkt og aðrar stóriðjur hér á landi, hefur of lengi komist upp með að greiða starfsfólki taxta sem eru lægri en það sem tíðkast á almennum vinnumarkaði. Enn fremur hefur samninganefnd Alcoa ítrekað lagt fram tilboð um hlutfallslega minni launahækkanir en gengur og gerist á almennum vinnumarkaði og hjá öðrum stóriðjum að undanförnu.
Samninganefndir AFLs og RSÍ minna á að rekstrarhagnaður Alcoa á síðasta ári nam 7,4 milljórðum króna — aukning um 2,5 milljarða króna frá fyrra ári. Það er því ljóst að fyrirtækið hefur bolmagn til að bæta kjör starfsmanna sinna.
Samninganefndir félaganna skora á eigendur verksmiðjunnar, sem njóta aðgangs að íslenskri orku á hagstæðum kjörum, að sýna samfélagslega ábyrgð og tryggja að starfsmenn fái sambærilegar launahækkanir og almennt eru greiddar á íslenskum vinnumarkaði.
Við krefjumst sanngjarnra launa fyrir vinnu sem skapar verðmæti fyrir fyrirtækið og íslenskt samfélag.