Golfmót iðnfélaganna verður haldið hjá Golfklúbbi Öndverðarness föstudaginn 6. júní 2025.

Mæting er í síðasta lagi kl. 9:15 og ræst út af öllum teigum samtímis kl. 10.

Leikin er punktakeppni með forgjöf og höggleikur án forgjafar.

  • Forgjöf er að hámarki 24 punktar og 30 fyrir konur.
  • Verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin í punktakeppni karla og kvenna og fyrsta sætið í höggleik karla og kvenna
  • Flott nándarverðalun á þremur par 3 holum, nánar tiltekið holum 2, 13, og 18
  • Sérstök verðlaun fyrir holu í höggi
  • Verðlaun veitt fyrir lengsta drive karla og kvenna á 7. holu.
  • Teiggjöf í upphafi móts og glæsilegar veitingar í boði iðnfélaganna í golfskálanum að móti loknu

Mótið er opið öllum golfurum í MATVÍS, RSÍ og VM og hvetjum við félagsfólk til þátttöku á einum glæsilegasta golfvelli landsins í Öndverðarnesi.
Boðið verður upp á rútu til og frá mótsstað – lagt af stað frá Stórhöfða 29-31 stundvíslega kl. 8:00 – skráning í rútuna er í netfangið palmi@fagfelogin.is

Athugið að þar sem um lokað mót er að ræða fer skráning aðeins fram hér eða í tölvupósti til gogolf@gogolf.is. Gefa þarf upp nafn, gsm og síðustu skráða forgjöf.

Mótsgjald er kr. 8.500 og greiðist við skráningu en skráningarfrestur er til miðnættis 5.júní og telst hún bindandi eftir 3.júní.