Orlofsuppbót greiðist 1. júní

Categories: 2025, Fréttir0 min readPublished On: 20. May 2025Last Updated: 21. May 2025

Orlofsuppbót greiðist þann 1. júní, miðað við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu, öllum starfsmönnum sem verið hafa samfellt í starfi hjá atvinnurekanda í 12 vikur á síðustu 12 mánuðum, m.v. 30. apríl, eða eru í starfi fyrstu viku í maí. Orlofsuppbótin er 60.000 krónur árið 2025.

Fullt starf telst í þessu sambandi 45 unnar vikur eða meira, fyrir utan orlof.

Ekki hika við að hafa samband við kjaradeild Fagfélaganna, ef frekari upplýsinga er óskað. Síminn er 5400100.