Áskorun til lánastofnana
Grindvíkingar takast nú á við einhverjar mestu náttúruhamfarir sem orðið hafa í byggð á Íslandi í hálfa öld. Fjögur þúsund manns hafa þurft að yfirgefa heimili sín og búa við mikla óvissu um framtíð sína og fjárhagslega afkomu. Ljóst er að gífurlegar skemmdir hafa orðið á eignum í bænum og óvíst hvort eða hvenær Grindvíkingar geta snúið aftur.
Undirrituð samtök launafólks skora á lánastofnanir að veita Grindvíkingum fullt greiðsluhlé næstu þrjá mánuði vegna þeirra hörmunga sem á þeim dynja. Í þeirri áskorun felst jafnframt að lánastofnanir falli frá vöxtum og verðbótum á tímabilinu.
Mikilvægt er að Grindvíkingar fái fjárhagslegt svigrúm til að takast á við þau áföll sem þeir hafa orðið fyrir og þann nýja veruleika sem við þeim blasir.
- Efling-stéttarfélag
- Matvæla og veitingafélag Íslands (MATVÍS)
- Rafiðnaðarsamband Íslands
- Sjómanna og vélstjórafélag Grindavíkur
- Verkalýðsfélag Grindavíkur
- Verkalýðsfélagið Hlíf
- VM – Félag vélstjóra og málmtæknimanna
- VR stéttarfélag