Greitt er 40% af útlögðum kostnaði, að hámarki kr. 82.500 á hverju 12 mánaða tímabili, vegna endurhæfingar og meðferðar hjá löggiltum meðferðaraðila sem hefur starfsleyfi frá landlækni eins og sjúkraþjálfara, kírópraktor/hnykkjara, iðjuþjálfa, heilsunuddara (skilyrði að viðkomandi sé í félagi heilsunuddara), sjúkranuddara og osteopata. Meðferð skal falla undir löggildingu viðkomandi starfsstéttar.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:
- Löggilt greiðslukvittun þar sem fram kemur nafn og kennitala seljanda og kaupanda, tímabil meðferðar, fjöldi skipta ásamt upphæðinni sem greidd var.
