Hámarksstyrkur er kr. 150.000 á ári til hvers félagsmanns. Endurgreitt er 75% af upphæð kvittunar, en aldrei hærri upphæð en kr.150.000 á hverju 12 mánaða tímabili. Ferðakostnaður er ekki greiddur. Ekki eru veittir styrkir til sambærilegs náms eða námskeiðs og er í boði hjá Rafmennt.
Styrkjum er úthlutað mánaðarlega. Umsóknir skulu hafa borist a.m.k. mánuði fyrr.
- Ónýttir styrkir flytjast á milli ára, hámarks uppsöfnun er þrjú ár.
Nám á eftirtöldum sviðum er styrkt:
- Nám í stærðfræði sem eru viðbót við framhaldsskólanám og geta talist til undirbúnings háskólanáms eða eru á háskólastigi.
- Framhaldsnám á sviði raungreina og eðlis- og efnafræði sem er viðbót við framhaldsnám og geta talist til undirbúnings háskólanáms eða eru á háskólastigi.
- Tungumálanám til undirbúnings háskólanáms og talist geta á háskólastigi.
- Upphafsnám á brautum á háskólastigi.
- Annað nám sem veitir réttindi og/eða styrkir félagsmenn í störfum sínum.
- Viðkennd námskeið í fagnámi sem ekki eru haldin hjá Rafmennt. Ekki eru veittir styrkir til sambærilegs náms eða námskeiðs og er í
boði hjá Rafmennt. - Heimilt er að veita styrki til að sækja sérhæfð fagnámskeið erlendis á sviðum sem ekki eru í boði innanlands. Upphæð styrks skal miðuð við ferða- og námskeiðskostnað en getur þó ekki numið hærri fjárhæð en kr 150.000. í þeim tilvikum þarf að skila staðfestingu á skráningu og greiðslu námskeiðsgjalds, flugmiða, kvittun vegna hótelkostnaðar og greinargerð þar sem fram kemur um hvað námskeið fjallar, námslengd og hvar og hvenær námskeiðið er haldið sem og lýsing á starfssviði umsækjenda.
