Styrktarsjóði er heimilt að taka þátt í kostnaði félagsmanna vegna kostnaðarsamra læknisaðgerða.
Styrkur er metinn hverju sinni en að hámarki 40% af útlögðum kostnaði, hafi kostnaður verið hærri en kr. 100.000, en þó að hámarki kr. 110.000, auk þátttöku í ferðakostnaði sé um það að ræða. Styrkur er veittur einu sinni á þriggja ára tímabili.
Undir kostnaðarsamar læknisaðgerðir teljast t.d. laser aðgerð á augum eða dvöl á heilsustofnun í Hveragerði. Ekki eru veittir styrkir vegna tannviðgerða, þar með taldar tannholdsaðgerðir.
Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:
- Greiðslukvittun frá meðferðaraðila þar sem fram kemur nafn og kennitala seljanda og kaupanda og yfirlit um greiðsluþátttöku síðustu 12 mánuði frá Sjúkratryggingum Íslands. Yfirlit má nálgast á sjukra.is
