Heimilt er að veita fæðingarstyrk vegna fæðingar barns félagsmanns að upphæð 154.000 kr. fyrir hvert barn. Styrkupphæð miðast við hvert barn og að foreldri hafi stundað 100% vinnu sl. 6 mánuði fyrir fæðingu barns/barna. Styrkurinn lækkar í hlutfalli við starfshlutfall viðkomandi. Þurfi félagsmaður að draga úr vinnu eða hætta störfum vegna veikinda fyrir fæðingarorlof skal horfa til starfshlutfalls fyrir veikindin. Ef barn fæðist andvana eftir átján vikna meðgöngu er greitt 50% af styrk.

Foreldri þarf að vera í a.m.k. 75% fæðingarorlofi, miðað við einn mánuð eða 50% fæðingarorlofi í 6 mánuði eða lengur og greiða félagsgjald af fæðingarorlofsgreiðslum, til þess að eiga rétt á styrk. Fæðingarstyrkur á við um alla sem njóta réttinda til fæðingarorlofs úr Fæðingarorlofssjóði, þ.m.t. fæðingarorlof vegna ættleiðingar. Mögulegt er að nýta styrkinn upp að 24 mánaða aldri barns/barna.

Styrkur er staðgreiðsluskyldur.

Gögn sem þurfa að fylgja umsókn:

  • Greiðsluáætlun frá fæðingarorlofssjóði um töku fæðingarorlofs, þar sem hlutfall og lengd fæðingarorlofs kemur fram.
  • Staðfestingu um starfshlutfall (ATH fyllist út af vinnuveitenda) sl. 6 mánuði fyrir fæðingu barns/barna. Sækja eyðublað
  • Vakin er athygli á því að styrkurinn fæst ekki greiddur fyrr en allt að þremur mánuðum eftir töku fæðingarorlof.