Stöndum þétt við bakið á okkar fólki hjá Sýn

Categories: 2026, Fréttir1 min readPublished On: 4. september 2026Last Updated: 4. september 2026

Fulltrúar Skerpu, aðildarfélags RSÍ, mættu á starfsstöð Sýnar í byrjun vikunnar, sama dag og tilkynnt var um uppsagnir hjá fyrirtækinu. Félagið fór fram á að eiga fund með mannauðsstjóra fyrirtækisins vegna stöðu félagsfólks. Trúnaðarmaður Skerpu hjá Sýn hefur þegar sett sig í samband við allt félagsfólk sem missti vinnuna og boðið því aðstoð og stuðning félagsins.

Uppsagnir eru jafnan þungt högg fyrir starfsfólk sem fyrir þeim verður. Skerpa mun standa þétt við bakið á félagsfólki sínu á næstu vikum og mánuðum og vera til taks eftir því sem þörf krefur. Félagið mun jafnframt gæta þess að réttindi starfsfólks séu virt að fullu í tengslum við uppsagnirnar.