Ferð eldri félaga RSÍ

Categories: 2026, Fréttir1 min readPublished On: 11. ágúst 2026Last Updated: 11. ágúst 2026

Ferð eldri félaga verður farin mánudaginn 31. ágúst og þriðjudaginn 1. september.

Lagt verður af stað frá bílastæðunum við Stórhöfða 31. (Grafarvogsmegin) kl. 12.00
Leið okkar liggur að Hvanneyri þar sem við munum heimsækja Landbúnaðarsafnið.
Eftir heimsókn á safnið er ekið sem leið liggur í átt að Borgarfirði og stoppað á
Hótel Hamri, þar sem boðið verður upp á kaffi og kökur.

Áætluð heimkoma milli kl.18.00 og 18.30

Skráning hefst mánudaginn 17. ágúst og lýkur mánudaginn 24. ágúst.

Hægt er að skrá sig með því að hringja á skrifstofuna í síma 5400 100
eða senda tölvupóst á rsi@rafis.is.

Makar eru að sjálfsögðu velkomnir en mikilvægt að skrá mætingu hans samhliða skráningu félagsmanns. Einnig er nauðsynlegt að skrá gsm símanúmer.
Þessar ferðir hafa verið vel sóttar síðustu ár og því mikilvægt að skrá sig tímanlega til að komast að en hámarksfjöldi í hvora ferð er 100 manns.

Bestu kveðjur

Starfsfólk RSÍ