Launahækkanir taka gildi

Categories: 2026, Fréttir0 min readPublished On: 29. apríl 2026Last Updated: 29. apríl 2026

Athygli félagsfólks er vakin á því að þann 1. apríl hækkuðu mánaðarlaun á opinberum markaði um 3,5% eða 23.750 krónur að lágmarki. Um er að ræða hækkun starfsfólks ríkis, Reykjavíkurborgar og annarra sveitarfélaga.

Taxtar á almennum markaði hækkuðu jafnframt um 0,06% þann 1. apríl 2026.

Starfsfólk á eftirágreiddum launum ætti að sjá þessar hækkanir á launaseðlinum sem kemur um komandi mánaðamót.

Athygli er vakin á því að launatöflur RSÍ hafa verið uppfærðar