Hádegisfundur: Niðurstöður könnunar um stöðu kvenna í karllægum greinum

Categories: 2026, Tilkynningar1 min readPublished On: 19. október 2026Last Updated: 19. október 2026

Sláandi niðurstöður:
51% kvenna hefur orðið fyrir kynferðislegri áreitni!
Könnun Vörðu um stöðu kvenna í karllægum greinum kynnt á hádegisfundi 21. október 2026

Ákall um að stíga inn og gera eitthvað var niðurstaða vinnustofu á Sambandsstjórnarfundi RSÍ í vor. Ein af tillögum vinnustofunnar, sem var eingöngu skipuð körlum, var að kynna vel niðurstöður könnunarinnar.

Kristín Heba frá Vörðu kynnir niðurstöður á hádegisfundi 21. október 2026.

Félagsfólk Fagfélaganna er eindregið hvatt til þess að mæta.

  • Boðið verður upp á hádegisverð – en fundinum lýkur 12:50. Skráning rennur út kl. 16  – 19. október!
  • Boðið verður upp á fjarfund og er skráning nauðsynleg!
  • Fundurinn fer fram á Stórhöfða 31. Gengið er inn Grafarvogsmegin (neðan við húsið).